Gleðilegt ár 2010Inga Steinarsdóttir

Sendum vinum og fjölskyldu fjær og nær, okkur beztu óskir um Gleði og hamingju á nýju ári.
Megi guð og gæfa fylgja ykkur á árinu sem er ný runnið upp.

Bestu kveðjur til ykkar allra héðan úr Keflavíkinni
Inga Lóa og Ragnar

Gleðileg jól öll sömulInga Steinarsdóttir

Kæru vinir og vandamenn,

Viljum óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum fyrir frábærar stundir á árinu sem er að liða.
Hafðið það rosalega gott yfir hátíðirnar 

Kossar og knús héðan frá Horsens

Inga Lóa og Raggi

Það er aldeilis farið að dimma snemma!!!Inga Steinarsdóttir

Ég var víst rukkuð um fréttir,,,, mhmmmm.
Svo sem lítið að gerast hérna í DK.  Fer í skólan eftir hentusemi, nenni ekki að læra og finn mér allt annað að gera.  Ég er að mana mig í að komast í gírinn enda styttist allverulega í próf.

En af skemmtilegri nótunum, þá er búið að vera töluvert að gera hjá mér.  Ég fór í vikunni út að borða á Mackies með saumó til þess að plana jólasaumó sem verður haldinn heima hjá Ástu og Þresti næstu helgi, og að verður jólamatur á boðstólnum, nammi namm, hlakka bara til. 
Svo fórum við Magga Sör og Lísa líka í vikunni á Mackies.
Á föstudaginn kom jólasveinninn hingað til Horsens þannig við Gústa fórum með Daniel og Rúnar, get nú ekki sagt að ég hafi nú fundist þetta vera neitt frábært.
Við rétt svo sáum jólasveininn sem sat í lestinni sinni og hreyfði sig ekki þaðan.  Ég held að það væri ekki svo vitlaus hugmynd að við Íslendingarnir tækum yfir að koma jólasveininum til byggða,, ég meina hann kom með ''SKIPI'', allavega þetta var ekki my cup of tea.

Um kvöldið fór ég út að borða með Gústu minni og Christinu á ítalska veitingarstaðinn hérna á horninu hjá mér.  Það var mjög gaman að hitta stelpurnar, sérstaklega núna þar sem Christina er að fara að flytja til Köben.  Hún er búin að fá mjög góða vinnu í ár.  Svo styttist í nýja fjölskyldumeðliminn hjá Gústu, hlakka til geðveikt til að fá að knúsa ''litlu prinsessuna''.  Það styttist heldur mikið í hana, en Gústa er komin 37 vikur og 1 dag, vona bara að þetta gerist sem fyrst.

Svo var piparkökugleði s.l. laugardag sem heppnaðist mjög vel.... Ekki voru bakaðar kökur í ár en það voru nokkur hundruð kökur skreytar, búið til sykurmolahús, litað og búnir til englar. 

Svo tapaði mín sér hérna á Sunnudaginn að þrífa og skreyta heimilið,,, en get ekki sagt að ég sé neitt voðalega ánægð með það í ár... Ég nefnilega asnaðist til að gera nýja greniskreytingu og er hún einhvern veginn að eyðileggja allt.  er að spá að setja hana inn á klósett.  Þá kannski fæ ég þetta allt til að virka, heheheh.
Annars hef ég verið dugleg í skreytingum,, búin a gera aðventukrans,skreytingu fyrir jóladagatalskertið mitt og svo þessi fræga nýja skreyting.

 Einnig málaði ég mynd um helgina, sem ég er búin að vera diskútera við sjálfa mig hvot að ég ætti að hengja hana upp, en ákvað það áðan að leyfa jólunum að líða.

Annars styttist heldur betur að Raggi komi, er mér farið að hlakka geðveikt  til að losa hann úr öllu þessu kreppu tali,,, það er að gera mig geðveika.

En að öðruleyti gengur allt sinn vanagang og mér líður bara vel, væri samt alveg til í smá snjó,,,, allavega þá daga sem ég þarf ekki að keyra til Aarhus.

Það sem ég stefni á í vikunni er að klára hálpa Ly með lokaverkefnið sitt sem hún á að skila á föstudaginn, laga skreytingarhallærið á heimilinu, fara til Odense á laugardaginn og kíkja á HC Andersen markaðinn. Um kvöldið er jólasaumó.  Á sunnudaginn er ég búin að bjóða Frikka, Hrafnhildi og krílum í aðventukaffi og svo fer ég út að jólahlaðborð með gamla markaðsfræði bekknum mínum,,, þannig að það er eiginlega brjálað að gera.  Þetta er farið að sounda eins og týpískur desember mánuður.

Varið varlega öllsömul og varið vel með ykkur.
Verið góð við hvort annað og gleymið ekki bænunum ykkar


hilsen, I

Alltaf gaman að sjá hvað fólk getur verið gjafmilt.Inga Steinarsdóttir

Ég var að lesa moggann í gær á mbl.is og sá þar þessar tvær greinar.
Mér hlýnar bara um hjartarætur þegar ég les svona fréttir.  En einnig sýnir þetta okkur hversu óútreiknanlegt fólk getur verið, annað hvort erum við að níðast á hvort öðru eða við kærleik í garð hvors annars.

Ég ætla að enda þetta á þessum greinum sem ég fékk lánað af mbl.is

Drengileg viðbrögð í Danmörku

DANIR hafa brugðist drengilega við fjárhagserfiðleikum íslenskra námsmanna í kjölfar hruns krónunnar og gjaldeyrisörðugleika Íslendinga. Danskur athafnamaður sem tengist Íslandi „miskunnaði sig" yfir hóp íslenskra nemenda við íþróttalýðháskólann í Árósum, að því er segir í frétt fréttaþjónustu Öresundsvæðisins í Svíþjóð. Þar kemur fram að nærri hafi legið að sjö íslenskir nemar við skólann neyddust til að snúa heim því þeim var orðið nær ómögulegt að greiða fyrir mat og uppihald í Danmörku. Umræddur athafnamaður reiddi fram 150 þúsund danskar krónur (um 3,1 milljón ÍKR) og tryggði með því áframhaldandi nám Íslendinganna. Þetta vinarbragð mun hafa orðið til þess að opnuð var Facebook-síða á vegum íþróttalýðháskólans til að safna fé til styrktar Íslendingum í Danmörku. Henrik Løvschall, rektor íþróttalýðháskólans sagði í samtali við Ritzau fréttastofuna að þeir hafi fengið vísbendingar um að fleiri vildu fylgja þessu góða fordæmi athafnamannsins og leggja lið. Eins ætlar skólinn að efna til fjáröflunar.

Leysti fljótt úr fjárhagsvanda

Nýlega sagði Morgunblaðið frá stúlku sem mætti miklum skilningi skólastjóra Testrup  lýðháskólans á Jótlandi. Í framhaldi af því barst bréf frá móður pilts sem nemur við Den Rytmiske Højskole ásamt tveimur öðrum íslenskum strákum. Sonur konunnar fór til náms í

byrjun ágúst og var þá búinn að gera áætlun um námskostnað. Hún fór rækilega úr skorðum og gekk hratt á innistæðuna sem átti að duga fyrir náminu. Því var málið rætt við skólastjórann. Ekki liðu nema tæplega fimm klukkustundir frá samtalinu þar til skólastjórinn

kom til íslensku piltanna og kvaðst vera búinn að útvega hverjum og einum þeirra 7.600 danskar krónur (156 þúsund ÍKR) í styrk vegna fjárhagsvandræða þeirra.

gudni@mbl.is

Munið að vera góð hvert við annað

Haustið komið og veturinn fer að ganga í garð!!!Inga Steinarsdóttir

  Þá er komið haust og allt að smella í sinn vanagang.  Skólinn byrjaður á fullu og það liggur við að ég sé farin að telja niður að næsta fríi..... Já skólinn er bara búinn að vera í 8 vikur og ég er alveg til í frí!!

 Þannig er að ég er byrjuð í Aarhus school of Business í Árósum í Viðskiptafræði. 

Ég get bætt einu ári við Markaðshagfræðina og fæ þá Bsc í Business Administration og modern languages.  Eins og mig var farið að hlakka til að fara í skólann, þá hefur hann ekki alveg verið að gera sig.  Við erum í 6 fögum og 3 af þeim eru kennd meira og minna á sama tíma og það er ekkert í boði til að laga það.  Við ‘markaðshagfræðingarnir´ erum svona eiginlega gleymd í skólanum og þeir eru að reyna að gera eitthvað fyrir okkur, en það lítur ekki vel út, nú bara að vera dugleg og lesa og gera sitt besta!

Ég náði öllum prófunum mínum úr sumarskólanum, guð sé lof :-)

Ég keyri á milli alla daga með honum Árna Erlings en hann var með mér í VIA og er í sama námi og ég, gott að hafa einhvern til að keyra með.

Raggi er búinn að vera hjá mér í tæpar 2 vikur.  Hann keyrði hingað frá Spáni með bílinn hans Pétur Péturs og Siggu.  Hann ætlar að fara með bílnum í Norrænu núna á laugardaginn.

Við erum bara búin að hafa það náðugt í fallega haustveðrinu.  Og svo hefur Raggi líka verið duglegur að gera haustverkinn, þar á meðal að taka inn úti-húsgögnin, þrífa rennurnar og taka bílinn í gegn ;-)

Svo erum við nátturulega eins og allir hinir að velta okkur upp úr hagkerfinu okkar á Íslandi.  Margir eru í slæmum málum og aðrir ekki.  En við erum í ágætismálum, allavega ekki neitt til að hafa áhyggjur af eins og er.

Annars er gaman að heyra sögurnar sem ganga um bæinn, þá meina ég þessa ýktu sögur.  Eins og ég heyrði uppi í VIA í gær.  Sögurnar sem gengur voru að það ætti að reka alla íslendinganna úr skólanum þar sem íslenska ríkið væri ekki að borga skólagjöldin fyrir námsmenn og svo hin sagan var að skólinn ætlaði að bjóða námsmönnum aðstoð ef þess þyrfti.  Hvorug sagan er staðfest!!!

En framundan hjá mér er að klára kaupa jólagjafirnar og pakka þeim inn þar sem Raggi ætlar að taka þá með sér heim á laugardaginn.  Svo í næstu viku fæ ég heimsókn frá Höllu minni, Brynjar og Guðrúnu Elfu, það verður æðislegt að fá þau.

Svo náttúrlega styttist í að það komi jól og þeim fylgja víst PRÓF.  Ég stefni á að vera hérna í DK um jólin þar sem ég býst fastlega við að flytja heim næsta sumar, þ.e.a.s. ef einhver vinna verður í boði fyrir mann.  En eins og staðan er núna þá er ég með alla anga úti.

Núna sit ég í hagfræði tíma hjá ítalanum Davide að reyna að skilja það sem hann hefur fram á að færa, en ekkert gengur.  Þessir ítalar eiga bara að halda sig við ítölsku!!!  Sorglegasta við þetta er að ég er með 3 kennara sem eru ítalar og þeir eru allir álíka góðir í ensku en það versta við þetta þetta eru ekki einu sinni myndarlegir menn þannig að maður gæti eytt tímanum sínum í að horfa á þá!! Ha ha ha ha

Jæja ég ætti nú kannsi að reyna að fylgjast með greyið manninum.

Endilega verið jákvæð og góð við hvort annað.  Gleymið ekki að bros getur gert kraftaverk

Kossar og knús héðan úr sunny Horsens

Inga  

Horsens-Keflavík-New York-Keflavík-HorsensInga Steinarsdóttir

Það hefur heldur betur verið ferðalag á mér síðan útskriftin var.  Kannski að ég byrji á byrjuninni.
Eftis útskriftina sem var 4 júlí s.l. þá var smellt sér í rútu kl 02:00 frá Horsens laugardagsnóttina og haldið á leið til Frederecia.  Þaðan var tekin lest til Köben og svo metró út á Kastrup.  Ég átti flug kl 07:50 og var komin um 06:00 en það tók tímanna tvo að checka sig in en allt gekk vel á endanum, náði að fara á klóið áður en ég fót út í vel Ullandi.

Raggi náði í mig á flugvöllinn og við fórum heim og hölluðum okkur.  Ég ætlaði nú aldeilis bara að hala mér í 2 - 3 tíma en það klikkaði heldur betur og urðu þeir um 6 tímar Öskrandi.

Annars var töluvert að gera þessa 4 daga sem ég var í Kef.
Eyddi tíma með Önnu minni, kíkti á Mundu mágkonu, fór í mat til Þórhalls bróðir og Oddu.  Hitti Gunnhildi, Höllur og Viktoríu í Rek og fórum út að borða. Svo fórum við Mæja út að borða sem var mjög nice.  Takk fyrir allt Mæja mín.  Einnig fór ég á jarðaför hjá Sigga Ben og var ég bara mjög fegin að vera í Kef til þess að geta farið.
Fór ásamt, Halldóru og Ebbu með Steffi mína í fyrsta sund tímann, sem var bara æðislegt.  Hún var frábærust eins og vanalega.  Fór út að borða með Jóhönnu minni og Árnýju. Þannig að það var eiginlega bara slatta af gera.

Svo var haldi til New York.  Þar var labbað út um allt, farið í ferði bæði uptown, downtown og Brooklyn og í bátaferð um Manhattan og svo Ellis Island.  Ekki má gleym að við kíktum á alla fossanna sem hann Ólafur Elíasson hannaði sem eru allir út frá Brooklyn brúnni.  Svo tókum við Subway til Queens, þar sem við versluðum aðeins.  Fórum út að borða öll kvöldin á góðum veitingarstöðum t.d. Outback, Olive garden BBQ NY grill ......
Ég meiri segja náði að brenna í góða veðrinu sem við fengum.  Ég verð nú að segja það var nú ekki tapað sér í verslunnar leiðangri sem er mjög ólíkt mér!!!!

Svo var haldið aftur til Keflavíkur þar sem ég var með smá stopp eða um 6 klukkutíma eða svo.  Þannig að það var bara smellt sér í sturtu heimsókt, Jöhönnu og þaðan var farið til Gunnu og síðan í Háholtið og þaðan í Heiðarbakkan þar sem Kalla og Gummi og stelpurnar voru.  Þau voru að flytja aftur til Íslands Gráta

Eftir að hafa kvatt alla þá var farið upp í flugstöð og haldið heim á leið.  Ég lenti á Kastrup á tilsettum tíma og fór í lestina sem gekk allaleið til Horsens,, JIBBÝ.
Magga og María náðu í mig á stöðina,,,, takk takk takk takk stelpur, bara bestar Koss

Það var rosalega gott að komast heim þar sem ég var bara búin á því.  Þetta ferðalag tíl heila sólahring með töpuðum tíma og stoppi, og það var bar rétt snoozað á ferðalaginu, enda sá ég rúmið í hyllingum. En mér til mikillar ónægju hafði ég ákveðið að taka utan af rúminu áður en ég fór og þurfti því að setja utan um.  En það var bara smellt sér í sturtu og svo beint upp í  og guð minn góður hvað það er extra nice að fara upp í rúm, hreinn og fínn og í hrein rúmföt.
Ferðalagið semsagt byrjaði á þriðjudegi kl 18 og endaði miðvikudagskvöld kl 23:00

Á Fimmtudagsmorgunn vaknaði ég nú frekar svona krumpuð í framan en það þýddi ekki neitt,, skólinn kallaði.  Já þið heyrðuð rétt Skólinn!!!!
Ég er í sumarskóla í Háskólanum í Árósum sem er byrjun á náminu mínu að verða viðskiptafræðingur!  Ég er í tveimur fögum International trade and investment og Business Methodology.  Og byrja prófin í næstu viku....................................

Ég á eftir að þakka fyrir gjafirnar sem ég fékk í útskriftargöf, takk fyrir mig elsku,
Bjössi og Ebba
Kalla, Gummi og stelpurnar
Linda, Vilbert og Birta Rós

Gústa, Toni og strákarnir

Halla, Viktoría, Mæja og Gunnhildur og fjölskyldur

Þið eruð æðisleg.
Ég stefni á að smella inn myndum úr ferðinni minni á næstu dögum á síðunna mína http://public.fotki.com/glodis.

Hilsen, Inga

Markaðshagfræðingur!!!Inga Steinarsdóttir

Já það er víst komið að því að skólinn sé að baki.  Við vorum að verja loka ritgerðina okkar í dag sem gekk alveg glimrandi.  Við stöllurnar fengum 12,,,,,,,,,, já 12 Guð minn góður hvað þetta var óvænt,, ég bjóst við jafnvel 10 en 12 var aldrei inni í myndinni hjá okkur.

Ég og Gústa erum búnar að ganga á bleiku skýi í allan dag.  Allur bekkurinn okkar náði en með misjöfnum árangri.  Við fórum svo öll í kvöld út að borða á stað sem heitir Oksen, til að fagna árangri okkar.

Er að smella mér upp í rúm,,, ég er bara orðin frekar þreytt, og sjokkið að síast inn að við höfum fengið
12

Ég lofa að smella inn nýrri færslu um helgina og segja frá því sem á daga mína hafa drifið.
Farið vel með ykkur
Knús frá ''fræðingnum''

Inga Lóa

Sól og sumar í HorsensInga Steinarsdóttir

Þá er víst önnur vika að baki og ný vika að byrja.
S.l. vika hefur bara verið svona frekar í rólegri kantinum.  Ég hef bara verið heima og notið sólarinnar og reynt að læra eitthvað fyrir próf, en það er svo geðveikur hiti og sól dag eftir dag að það verður nú ekki neitt geðveikt úr verki.

Á fimmtudaginn bauð ég Möggu, Hadda og Rúnari ásamt Mariu í mat á fimmtudaginn og svo bauð Magga mér í mat á föstudaginn.  María var líka í mað ásamt Sveinu, sem verður í DK í viku.  Hún er hérna með vistfólkið frá Lyngmóa 10 Nja.  Það var gott að hitta hana og gaman að heyra að það farið með þessa krakka til útlanda.  Þau eiga eftir að búa að þessu alla ævi. 
Sama kvöld kíkti ég á Ragnheiði í smá stund og svo til Gústu og Tona svo var smellt sér heim og hallað sér.

Laugardagsmorguninn byrjaði á því að smella sér í kvennahlaup og byrjaði það niðri á flötinni bak við mosann, og reyndar var bara þokkalega mæting.
Í gærkvöldi fórum við nokkrar skvísur á Corfitz og svo smelltum okkur á  Sex in the City.  Þetta er virkilega góð mynd og það var mikið hlegið og fellt nokkur tár líka. 

Svo heyrði ég líka í Höllu minni í gær  og það var svo gott að heyra í henni.  Guðrún Elfa flutt til hennar og Brynjars þannig að lífið allt að fara í réttar skorður á ný.

Svo í dag ætla ég að undirbúa fundinn sem er hjá íslendingafélaginu á morgunn en við ætlum að halda 17 júní hátiðlegan 14 júní n.k. og svo erum við með Íslenskt bío 17 júní hérna í Megascope.  Við munum sýna Stóraplanið og vonandi mun það ganga mjög vel.

Svo kemur Raggi hingað í nótt og verður í 2 vikur.  Svo koma Bjössi og Ebba á mánudaginn og fara svo til Spánar á miðvikudaginn með Köllu og stelpunum og verða í viku.

Ég einfaldlega trúi ekki hvað tíminn flýgur áfram.  Þessi önn bara að verða búin og Kalla, Gummi og stelpurnar að flytja heim.  Það verður þvílík viðbrigði að hafa þau ekki.  Og ég mun sakna þeirra endalaust Gráta  En gleði fréttirnar eru að Kalla komst inn í KHÍ og byrjar núna í haust :-)

Jæja, þvottavélin kallar,,,,,,,,

Hafið það gott

hilsen, Inga Lóa

SjómannadagurinnInga Steinarsdóttir

Hædí hó,

En í dag er sjómannadagurinn og sem er svona frekar hátíðlegur dagur allavega fyrir mig, pabbi var skipstjóri og hefur þessi dagur alltaf verið haldinn hátíðlegur allavega var það þannig hjá mér og mömmu og pabba.  Farið var niður á Keflavíkur bryggju og tekið þátt í öllum hátíðarhöldunum en því miður er ekkert að gerast í Keflavík lengur eflaust vegna þess Keflavík er ekki lengur ''Fiskibær''
En svo eftir að pabbi dó, þá var það svona óskráð relga sem mamma bjó til að það yrði að vera búið að setja blóm á leiðið hans fyrir daginn í dag,  ég veit ekki hvort að það sé einhver búinn að því heima en ég er allavega búin að gróðursetja blóm og kveikti á kerti fyrir hann.

Nú er víst komið nóg að memory lane,

Allavega er ég loksins búin að skila inn lokaritgerðinni minni sem endaði í 182 bls,,,,,,,,,,,,,  Jebb OMG  enda fannst mér þetta orðið endalaust :-)

Það sem framundan er, er próf 19 júní og svo verja verkefnið mitt 26 júní og svo útskrift 04 júlí.

Ég hef svo sem bara verið að dóla mér um helgina, fór í gær (laugardag) til Köllu, Gumma og stelpnanna og var boðið í mat í íslenskt læri,,,,,,,,,,, nammi namm.  Þetta var góð tilbreyting frá öllu junk matnum í vikunni hehehe
í dag hef ég nú bara verið að sóla mig í 30 stiga hita, reyndar tók ég smá á í garðinum, þreif grillið og þvoði þvott bara svona til að geta verið úti við, þar sem ég er nú ekki þessi sólbað týpa, en dagurinn endaði í smá bruna, en ekkert alvarlegtUllandi

Annars er bara allt gott að frétta, ég fer til Íslands 06 júlí og svo til NYC 11 júlí og svo kem ég aftur til DK 17 júli.  Svo var ég að frétta að skólinn byrjar aftur 14 júlí, great!!!

Vikan framaundan verður tekinn í að lesa fyrir inventory próf og svo byrja á kynningunni fyrir lokaverkefnið, já semsagt læra, læra og aftur læra.  Guð hvað mér er farið að hlakka til að fara í smá frí!! 

Jæja best að hafa þetta ekki lengra að sinni,

V.Hilsen

Inga

Sumar og sól í HorsensInga Steinarsdóttir

Ég veit nú ekki hvernig þetta endar, dagarnir bara koma og fara og það styttist heldur betur í skil á lokaverkefninu mínu.  Ég get nú ekki sagt að ég hafi nú verið svo allra duglegasta en það er nú vegna veðurs.  Það er bullandi sól og hiti hérna alladag þannig að maður verður geðveikur á því að hanga svona inni en það hefur nú samt verið gert!!!!

Annars er nú búið að vera að slatta að gerast frá því ég bloggaði síðast eins og

     Svalur Farið til Köben með Köllu, Gumma og stelpunum.  Lentum í grenjandi rigningu þannig að þessi ferð
            sem átti nú að vera menningarferð varð að kaffihúsa og búðar ferð.  Á endanum fórum við til
            Margrétar og Carstens í Lyngby i mat og Hallur Steinar og Kjartan komu líka.  Það var frábært að
            sjá þau þar sem ég hef nú ekki séð þau síðan um jólin.

     Svalur Síðustu helgin (2-4 Mai) var grillað hjá golfklúbbnum og mættum við hjónin að sjálfsögðu og
            reyndum að gera eitthvað gagn en það var hann Hansi sem var yfirgrillari og hann grillaði SS pylsur
            ofan í liðið af mikilli snilld.

     Svalur Um kvöldið var ball á skólabarnum sem var ágætlega sótt og var reyndar bara mjög skemmtilegt en
            maður var nú frekar þreyttur eftir allt þetta stúss, mætti halda að ellin væri að hellast yfir mig!!!
            
     Svalur  Sunnudagurinn var bara ónýtur hjá mér og fór í bull og vitleysu og mun ég nú súpa seyðið af því
             þessa vikunna þar sem ég ætla að vera innipúki og reyna að smella mér í gírinn og reyna að
             drulla projectið af.

     Svalur  Íslensk vika í kantínunni.  Ég og Frikki erum búin að tapa okkur að reyna að búa til smá íslenska
            stemmingu.  Það hefur verið spiluð íslensk tónlist öll hádegi og svo var stærðareinar hlaðborð í
            gærkveldi (fimmtudagskvöld)

     Svalur  Reyndar á morgunn er afmæli hjá Láru skvísu en hún var35 ára í vikunni og á að smella upp
             brjálæðu teiti í mosanum..........

Annars er allt bara svona hið besta á bænum.  Raggi átti að fara í gær en ákvað að vera lengur eða þangað til 17 mai og flýgur hann þá heim frá Billund.

En þar sem þetta er hvítasunnuhelgi þá get ég ímyndað mér að margir reyna nú að fara úr bænum og veit ég um nokkra hérna sem ætla að smella sér í bústað.

Hvað ætlið þið hin að gera um helgina,,,,,, Látið heyra í ykkur

Ég ætla að fera leggjast aftur á bekkinn og ath hvort að það sé ekki hægt að fá sér meiri brúnku heheheheheh

Knús frá mér og Ragga til ykkar allra!!!!

Hilsen Inga    

p.s. það er komið fullt af nýjum myndum inn á myndasíðunna, hún er læst en ef þið viljið leyni þá bara senda mér póst á glodis@mai.dk
           

Prófíll

  • Nafn: Inga Steinarsdóttir
  • Netfang: glodis@mail.dk
  • Staður: Horsens
  • Atvinna: Nemi í Viðskiptafræði við Aarhus School of Business

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Nýjast á HumorPix

Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay.. Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit

Innskráningar kubbur